Bryggjuhverfið mun stækka um 30%

Á bilinu 190 til 250 íbúðir verða byggðar í Bryggjuhverfinu …
Á bilinu 190 til 250 íbúðir verða byggðar í Bryggjuhverfinu í átta fjölbýlishúsum. Hverfið mun stækka um 30%. mbl.is/Júlíus Sigurjónsson

Byggingaframkvæmdir við tvö fjölbýlishús í Bryggjuhverfinu, næst Sævarhöfða, eru nú á fullum skriði og tvö önnur fjölbýlishús í hverfinu, úti á tanganum, eru á teikniborðinu og alls er áformað að reisa átta fjölbýlishús í hverfinu í þessum áfanga.

Hjálmar Sveinsson, formaður umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur, segir að ráðið hafi nýverið samþykkt skipulag úti á tanganum, í Bryggjuhverfinu, þar sem gert er ráð fyrir að rísi tvö fjölbýlishús.

„Það svæði er komið á það stig að fá byggingarleyfi. Björn Ólafsson arkitekt er að hanna fjölbýlishúsin, sem verða bara í samræmi við það sem þarna fyrir. Það var bætt við einhverjum íbúðum í húsin úti á tanganum en byggingarmagnið var ekki aukið,“ segir Hjálmar í  Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert