Konur aðeins skrifað undir 4% friðarsamninga

Lilja Alfreðsdóttir á fundi öryggisráðsins.
Lilja Alfreðsdóttir á fundi öryggisráðsins. Mynd/Sameinuðu þjóðirnar/Rick Bajornas

Lilja Alfreðsdóttir utanríkisráðherra ávarpaði í dag öryggisráð Sameinuðu þjóðanna, en haldinn var opinn fundur í ráðinu um öfgahyggju og hryðjuverk. Lagði hún áherslu á að engar einfaldar lausnir væru í boði og ráðast þyrfti að rótum vandans. Þá flutti hún lokaræðu á málþingi um mikilvægi þátttöku kvenna í friðarviðræðum og sáttaumleitunum og benti á skort kvenna í friðarumleitunum. Þannig hafa konur einungis skrifað undir 4% af friðarsamningum síðustu tvo áratugi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu.

Í máli sínu í öryggisráðinu lagði ráðherra áherslu á samvinnu og heildstæða nálgun í baráttunni gegn öfgaöflum. Sagði ráðherra engar einfaldar lausnir í boði, en mikilvægt væri að ráðast að rótum vandans. Benti hún á að hryðjuverkasamtök notuðust mikið við samfélagsmiðla og Youtube hefði meðal annars lokað á 14 milljón myndbanda á síðustu tveimur árum og Twitter lokað fyrir rúmlega 2000 áskriftir á síðustu mánuðum sem rekja má til samtakanna.

Utanríkisráðherra átti fund með Jan Eliasson, varaframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, og voru jafnréttismál, loftslagsmál, umbætur á starfsemi stofnunarinnar og tilnefning nýs framkvæmdastjóra, sem nú er í ferli, meðal annars til umfjöllunar. Á fundi með Lakshmi Puri, varaframkvæmdastjóra UN Women, áréttaði Lilja áframhaldandi stuðning Íslands við stofnunina, en Ísland er meðal helstu framlagaríkja UN Women og er stofnunin meðal fjögurra helstu samstarfsaðila á sviði þróunarsamvinnu.

Þá átti ráðherra fund með Richard Wright, yfirmanni svæðisskrifstofu Palestínuflóttamannaaðstoð SÞ, UNRWA, í New York, og fékk kynningu á starfsemi stofnunarinnar sem Ísland hefur stutt við bakið á en hún starfar m.a. í Jórdaníu, Líbanon, á Gaza og Vesturbakkanum.

Lilja flutti einnig lokaorð á málþingi um mikilvægi þátttöku kvenna í friðarviðræðum og sáttaumleitunum, en Norðurlöndin hafa hrundið af stað átaki um að fjölga konum sem taka virkan þátt í friðarviðræðum og uppbyggingu á alþjóðavettvangi og styrkja stöðu kvenna meðal sáttasemjara í stríðshrjáðum löndum.

Sagði Lilja konur ekki einungis eiga skýlausan rétt á að taka þátt í friðarumleitunum sem helmingur mannkyns, heldur hefðu þær mikilsverða þekkingu og hæfni fram að færa. Einnig sagði ráðherra mikilvægt að brjóta niður múra í jafnréttisbaráttunni og fá karlmenn til að taka þátt í umræðunni um jafnan hlut kynja, en Ísland hefur á undanliðnum mánuðum staðið fyrir svokölluðum Rakarastofuráðstefnum hjá Sameinuðu þjóðunum og Atlantshafsbandalaginu í því augnamiði. „Tölurnar tala sínu máli. Á síðustu tveimur áratugum hafa konur einungis skrifað undir 4% friðarsamninga og konur leitt samningaviðræður í 9% tilvika. Hér virðist dropinn ekki hola steininn. Sérstaka hugarfarsbreytingu þarf til og ég bind vonir við að átak Norðurlandanna beri árangur", segir Lilja.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert