Ríkið styrki hreppinn þegar í stað

Frá Mývatni.
Frá Mývatni.

Heilbrigðisnefnd Norðurlands eystra mælist til þess að ríkisstjórn Íslands veiti Skútustaðahreppi nú þegar fjárhagslegan stuðning vegna kostnaðar við hönnun, byggingu og rekstur á hreinsivirkjun fyrir skólp í Skútustaðahreppi.

Segir hún mikilvægt að hraða úrbótum í fráveitumálum eins og kostur er þannig að ekki þurfi að koma til þess að takmarka fjölda ferðamanna á vatnasvæði Mývatns.

Þetta kemur fram í bókin sem nefndin hefur sent Sigurði Inga Jóhannssyni forsætisráðherra og Jóni Óskari Péturssyni, sveitarstjóra Skútustaðahrepps.

Hér má sjá bókunina í heild sinni:

Heilbrigðisnefnd ítrekar fyrri tilmæli til sveitarstjórnar Skútustaðahrepps um að skipuleggja og hrinda í framkvæmd úrbótum í fráveitumálum  til samræmis við gildandi lög og reglur og gagngert í þeimtilgangi að draga úr álagi í Mývatni af völdum næringarefna.

Að mati heilbrigðisnefndar er nauðsynlegt að byggja vönduð hreinsivirki fyrir skólp fyrir þéttbýlið í Reykjahlíð, Vogum og Skútustöðum og víðar þar sem byggð er þétt á vatnasvæði Mývatns.

Einnig er mikilvægt að bændur eigi þétt og vönduð 6 mánaða haughús og hagi búrekstri í samræmi við starfsreglur Umhverfisstofnunar um góða búskaparhætti, takmarki og vandi alla notkun á áburði og skili landbúnaðarúrgangi í viðurkennda förgun og að gert verði átak í flokkun, móttöku og förgun landbúnaðarúrgangs.

Heilbrigðisnefnd mælist jafnframt til þess að ríkisstjórn veiti Skútustaðahreppi nú þegar fjárhagslegan stuðning vegna kostnaðar við hönnun, byggingu og rekstur á hreinsivirkjum fyrir skólp í Skútustðahreppi.

Í þessu sambandi er bent á kröfu um ítarlega skólphreinsun skv. reglugerð um verndun Mývatns og Laxár (nr. 665/2012). Um er að ræða mjög kostnaðarsamar og íþyngjandi kröfur fyrir fjárhag lítils sveitarfélags og jafnframt felast miklir hagsmunir og ábyrgð í því að vernda Mývatn sem náttúruperlu á heimsvísu. 

Heilbrigðisnefnd minnir á mikilvægi þess að hraða úrbótum í fráveitumálum í Skútustaðahreppi eins og kostur er, þannig að ekki þurfi að koma til þess að takmarka fjölda ferðamanna á vatnasvæði Mývatns.

Frétt mbl.is: Mývatn að hruni komið

Frétt mbl.is: Stjórnvöld liðsinni við Mývatn

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert