Of margir stútar undir stýri

Lögreglan varar við hálku og strekkingsvindi á Mývatnsöræfum.
Lögreglan varar við hálku og strekkingsvindi á Mývatnsöræfum. mbl.is/Eggert

Lögreglan á Suðurlandi hafði í nægu að snúast um hvítasunnuhelgina. Hún stoppaði meðal annars 58 ökumenn fyrir of hraðan akstur og átta voru drukknir undir stýri.

Þeir sem voru stoppaðir voru töluvert ölvaðir og hrósaði lögreglan á Suðurlandi þeim vegfarendum sem hringdu til að tilkynna um skrýtið og undarlegt ökulag. Reyndar kom stundum í ljós að viðkomandi ökumaður var bara í símanum.

Reyndi að skipta við farþega í framsæti

Frá því klukkan 7 á föstudagsmorgun og til 23 í kvöld voru fjórir teknir fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Einn ökumaður, stúlka, var stöðvuð eftir að hafa verið mæld á 119 kílómetra hraða. Hún reyndi að skipta við farþega í framsæti en sá var einnig undir áhrifum fíkniefna. Stúlkan var búinn að missa ökuréttindin, var ofurölvi og einnig undir áhrifum fíkniefna. Þau fengu að sofa úr sér í fangaklefa og yfirheyrð þegar þau voru skýrsluhæf.

Alls voru 58 teknir fyrir of hraðan akstur en Suðurlandsumdæmi er gríðarlega stórt. Segir lögreglan að umferð hafi verið með mesta móti þessa fyrstu ferðahelgi ársins.

Frétt mbl.is: Tuttugu teknir fyrir hraðakstur 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert