Þórunn hlaut Mannréttindaverðlaunin

Þórunn Ólafsdóttir.
Þórunn Ólafsdóttir.

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri veitti í morgun Þórunni Ólafsdóttur, sem hefur unnið ötult hjálparstarf í þágu flóttamanna m.a. á grísku eyjunni Lesbos, Mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar í Höfða. 

Þórunn hefur verið við sjálfboðastörf á eynni Lesbos frá því í ágúst á síðasta ári þar sem hún hefur barist fyrir mannréttindum fólks á flótta, og frætt almenning um þær erfiðu aðstæður sem bíða flóttafólks við komuna til Evrópu.

Þórunn er enn við störf á Lesbos og gat ekki veitt verðlaununum viðtöku sjálf en amma hennar og nafna Þórunn Ólafsdóttir tók við verðlaununum fyrir hennar hönd.

Hefur lagt sjálfa sig í hættu

Borgarstjóri sagði við afhendingu verðlaunanna að starf Þórunnar væri ómetanlegt. „Þórunn hefur unnið þrotlaust að hjálparstarfi þar sem neyðin er mest í Evrópu hvort sem það er við móttöku flóttafólks á Lesbos eða í flóttamannabúðunum í Idomeni. Hún hefur lagt sjálfa sig í hættu og lagt allt í sölurnar fyrir starf sitt að mannúðarmálum.  Á milli þess sem hún sinnir sjálfboðastörfum hefur hún verið óþreytandi við að fræða Íslendinga um stöðuna í Evrópu varðandi flóttafólk,“ sagði borgarstjóri. 

Verðlaunin að þessu sinni eru 600 þúsund krónur.

Að lokinni afhendingu Mannréttindaverðlaunanna úthlutuðu Magnús Már Guðmundsson og Sabine Leskopf fulltrúar í mannréttindaráði, styrkjum mannréttindaráðs til 20 verkefna að upphæð samtals 7 milljónum 150 þúsund krónum.

Mannréttindaverðlaunin eru veitt þeim einstaklingum, félagasamtökum eða stofnunum sem hafa á eftirtektarverðan hátt staðið vörð um mannréttindi tiltekinna hópa.

Fréttir mbl.is um störf Þórunnar:

Algjört vonleysi og vantraust

„Ungbörn missa meðvitund“

Stödd í úthverfi helvítis

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert