Facebook-bilun veldur vandræðum

Samkvæmt frétt Independent birtast færslur ef notast er við Facebook-smáforritið.
Samkvæmt frétt Independent birtast færslur ef notast er við Facebook-smáforritið. AFP

Svo virðist sem bilun hjá Facebook sé að valda því að sumum reynist erfitt að uppfæra og birta nýjar færslur á svokölluðum Pages, þ.e.a.s. síðum fyrirtækja og fjölmiðla. Bilunin nær m.a. til Facebook-síðu mbl.is en samkvæmt breska miðlinum Independent háir hún einnig fjölmiðlum erlendis.

RÚV er meðal þeirra fjölmiðla sem hafa ekki getað birt færslur en samkvæmt frétt Independent hefur sá miðill getað „póstað“ án vandkvæða. Þá virðist vera hægt að birta færslur ef notast er við Facebook-smáforritið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert