Sigmundur tekur sæti á þingi á ný

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson tók sæti aftur á Alþingi í kvöld …
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson tók sæti aftur á Alþingi í kvöld eftir sjö vikna frí frá þingstörfum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, fyrrv. forsætisráðherra, hefur tekið sæti aftur á Alþingi eftir um sjö vikna frí frá þingstörfum. Sigmundur tók sér frí eftir að hann sagði af sér embætti forsætisráðherra í kjölfar afhjúpana Panama-skjalanna svonefndu. 

Einar K. Guðfinnsson, forseti Alþingis, greindi þingmönnum frá þessu við upphaf þingfundar sem hófst klukkan átta í kvöld, en þar fara nú fram umræður um meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum. Bogi Hafliðason hefur setið á þingi í fjarveru Sigmundar Davíðs.

Frétt mbl.is: Snýr Sigmundur aftur með skegg?

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert