130 þúsund króna sekt fyrir hraðakstur

Um að gera að stilla hraðanum í hóf.
Um að gera að stilla hraðanum í hóf. mbl.is/Eggert

Undanfarna daga hafa allmargir ökumenn verið kærðir fyrir hraðakstur í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum. Sá sem ók hraðast mældist á 150 km hraða, en hann ók eftir Garðskagavegi þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund.

Lögreglan segir að ökumannsins bíði 130.000 króna fjársekt, svipting ökuleyfis í  einn mánuð og þrír refsipunktar í ökuferilsskrá.

Þá var einn ökumaður til viðbótar handtekinn vegna ölvunaraksturs og annar vegna fíkniefnaaksturs. Sá síðarnefndi var réttindalaus undir stýri.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert