Norskar orrustuþotur væntanlegar

Verkefnið verður framkvæmt með sama fyrirkomulagi og fyrri ár og …
Verkefnið verður framkvæmt með sama fyrirkomulagi og fyrri ár og í samræmi við loftrýmisgæsluáætlun NATO fyrir Ísland. Myndin er úr safni. mbl.is/Þórður Arnar

Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland hefst að nýju mánudaginn 30. maí með komu flugsveitar norska flughersins. 

Alls munu um 70 liðsmenn taka þátt í verkefninu og til viðbótar starfsmenn frá stjórnstöð NATO í Uedem í Þýskalandi (Combined Air Operations Center). Flugsveitin kemur til landsins með fjórar F-16 orrustuþotur.

Gert er ráð fyrir aðflugsæfingum að varaflugvöllum á Akureyri og Egilsstöðum á tímabilinu 1. – 4. júní, að því er segir á vef Landhelgisgæslunnar.

Verkefnið verður framkvæmt með sama fyrirkomulagi og fyrri ár og í samræmi við loftrýmisgæsluáætlun NATO fyrir Ísland. Ráðgert er að verkefninu ljúki fyrir lok júní. Verkefnið er framkvæmt af starfsmönnum Landhelgisgæslu Íslands á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert