Senda átta lögreglumenn á EM

Stuðningsmenn íslenska landsliðsins ætla að flykkjast til Frakklands á EM …
Stuðningsmenn íslenska landsliðsins ætla að flykkjast til Frakklands á EM í sumar. Íslenskir lögreglumenn fylgja með. mbl.is/Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Innanríkisráðherra Frakklands hefur óskað eftir því við íslensk stjórnvöld að þau sendi íslenska lögreglumenn til aðstoðar frönskum lögregluyfirvöldum vegna Evrópumeistaramótsins í knattspyrnu í næsta mánuði. Þetta var kynnt á ríkisstjórnarfundi í dag. Verkefnið mun kosta allt að 20 milljónir króna. 

Áætlað er að u.þ.b. 15 til 20 þúsund Íslendingar verði í Frakklandi í tengslum við mótið. Innanríkisráðuneytið hefur átt samráð við embætti ríkislögreglustjóra um viðbrögð við erindi Frakka en fulltrúi embættisins tekur þátt í  NFIP-samstarfi (National Football Information Point) Evrópuríkja sem Ísland á aðild að á grundvelli Evrópusamnings um „ofbeldi og ótilhlýðilega hegðun áhorfenda á íþróttamótum, einkum á knattspyrnuleikjum.“

Alls hafa frönsk stjórnvöld óskað eftir átta íslenskum lögreglumönum til starfa í miðstöð alþjóðlegrar lögreglusamvinnu og í færanlega sveit, sem ætlað er að fara á milli borga í Frakklandi, þar sem íslenska landsliðið spilar hverju sinni, og vera staðarlögreglu til aðstoðar.  

Aðstoðin felst m.a. í því að vera í sambandi við íslensku stuðningsmennina og veita þeim aðstoð, vera þeim innan handar vegna mála sem hugsanlega geta komið upp, s.s. ef rýma þarf leikvang, eða gefa fyrirmæli um einhverjar breytingar á áætlun.

Íslensku lögreglumennirnir munu fá allar upplýsingar frá fyrstu hendi, geta miðlað þeim áfram til stuðningsmanna eftir atvikum og veitt alla mögulega aðstoð.

Samkvæmt upplýsingum frá innanríkisráðuneytinu ræðst kostnaðaráætlun verkefnisins af framgangi landsliðsins á mótinu en kostnaður er talinn geta orðið allt að 20 milljónir króna ef liðið nær langt í keppninni.

Innanríkisráðherra lagði fram ofangreindar upplýsingar á ríkisstjórnarfundi og var samþykkt að veita allt að 20 m.kr. af fjáraukalögum þannig að unnt verði að bregðast við framangreindum óskum franskra stjórnvalda. Embætti ríkislögreglustjóra verði falið að annast framkvæmd málsins á grundvelli samþykktrar kostnaðaráætlunar í samráði við innanríkisráðuneytið.

Vegna mótsins fór fram öryggisráðstefna átakshóps innanríkisráðuneytis Austurríkis 12. maí síðastliðinn. Fulltrúar innanríkisráðuneyta, knattspyrnusambanda og lögregluembætta Ungverjalands, Íslands, Portúgal og Austurríkis undirbúa nú öryggisráðstafanir fyrir riðlakeppnina og sat aðstoðarmaður innanríkisráðherra fundinn fyrir hönd Íslands ásamt fulltrúa ríkislögreglustjóra.

Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu tekur þátt í EM í sumar.
Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu tekur þátt í EM í sumar. Ljósmynd/ Foto Olimpik
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert