Lögreglan hefur opnað fyrir umferð um Suðurlandsveg en veginum var lokað fyrr í dag skammt frá Landvegamótum vegna umferðarslyss.
Tildrög slyssins liggja ekki fyrir en þrír voru í bifreið sem lenti utan vegar og valt, tveir karlmenn og ein kona. Fólkið er á þrítugsaldri samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurlandi.
Ökumaðurinn var fluttur alvarlega slasaður með þyrlu Landhelgisgæslunnar á Landspítalann í Fossvogi en hinir tveir voru fluttir með minni meiðsl með sjúkrabílum á sjúkrahús.
Frétt mbl.is: Umferðarslys á Suðurlandsvegi