1,9 milljónir í skaðabætur vegna lekans

Vodafone-málið var það fyrsta sinnar tegundar hér á landi.
Vodafone-málið var það fyrsta sinnar tegundar hér á landi. mbl.is/Ómar

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag Fjarskipti hf., eiganda Vodafone, til að greiða einstaklingi rúmar 1,9 milljónir í skaðabætur vegna gagnaleka sem varð í nóvember 2013. Byggði hann á því að hafa orðið fyrir tjóni vegna upplýsinga sem tölvuþrjótur stal af „Mínum síðum“ á heimasíðu Fjarskipta hf. í nóvember 2013.

Höfuðstóll bótakröfunnar í málinu hljóðaði upp á 8.424.500 kr. Niðurstaða héraðsdóms var sú að Fjarskipti hf. var dæmt skylt að greiða skaðabætur að fjárhæð 1.936.500 kr. auk málskostnaðar að fjárhæð 1.000.000 kr. og vaxta og dráttarvaxta.

Með þessum hafa verið kveðnir upp héraðsdómar í þeim sex málum sem höfðuð hafa verið vegna innbrotsins á „Mínar síður“. Áður hafði félagið verið sýknað í málum tveggja einstaklinga en var dæmt skylt til að greiða skaðabætur í málum þriggja einstaklinga, samtals að fjárhæð 2.700.000 kr. auk vaxta og málskostnaðar, sbr. kauphallartilkynningu félagsins, dags. 26.4. 2016.

Fjarskipti hf. er að kynna sér forsendur allra dómanna og meta framhaldið, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu.

„Innan Fjarskipta hf. hefur mikil vinna átt sér stað undanfarin ár á sviði öryggismála og hefur félagið kappkostað að læra af reynslunni. Innleiðingarferli öryggisvottunar upplýsingakerfa samkvæmt ISO-27001-upplýsingaöryggisstaðlinum var hafið þegar fyrrnefnt innbrot átti sér stað en fyrirtækið fékk vottun í júlí 2014 á grundvelli staðalsins sem var síðan uppfærð árið 2015 og tekur nú til alls fyrirtækisins. Vottunin felur í sér formlega viðurkenningu á því að hjá Vodafone sé upplýsingaöryggi stjórnað samkvæmt fyrirframákveðnum ferlum og fagleg vinnubrögð viðhöfð í hvívetna. Vottunin tryggir jafnframt stöðugar umbætur í upplýsingaöryggismálum og veitir þannig jákvætt aðhald en úttekt fer árlega fram,“ segir jafnframt í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert