Erlend ferðakona í sjálfheldu

Landsbjörg. leit
Landsbjörg. leit mbl.is/Eggert

Björgunarsveitin Víkverji frá Vík í Mýrdal hefur verið kölluð út vegna erlendrar ferðakonu sem er í sjálfheldu í urðinni í Reynisfjöru rétt fyrir austan drangana.

Erfitt var að komast að konunni og nokkuð klettaklifur þurfti til, en nú eru þrír björgunarmenn komnir til hennar. Undirbúningur við að koma henni niður stendur yfir en til þess þarf nokkra línuvinnu og erfitt er að athafna sig í brattri skriðunni þar sem hún er stödd, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá Landsbjörgu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert