Mjög þrengt að háskólakennslu

Háskóli Íslands.
Háskóli Íslands. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Gerðar eru alvarlegar athugasemdir við fjármálaáætlun fjármála- og efnahagsráðuneytisins fyrir árin 2017–2021 í ályktun sem aðalfundur Félags prófessora við ríkisháskóla hefur sent frá sér og samþykkt var samhljóða í dag. 

„Samkvæmt áætluninni verða einungis lítils háttar breytingar á framlögum til háskólamála til ársins 2019 og eftir það munu framlög til háskólamála standa í stað. Áætlunin gengur gegn samþykkt fyrrverandi og núverandi stjórnvalda um aukið fé til háskólamála á Íslandi um að ná meðaltali OECD-ríkjanna árið 2016 og meðaltali Norðurlandanna árið 2020.“

Þá segir að að óbreyttu muni fjármálaáætlunin þrengja mjög að háskólakennslu og háskólarannsóknum í landinu, hamla nýliðun og nýsköpun og hafa enn fremur neikvæð þjóðhagsleg áhrif til lengri tíma.

„Aðalfundur Félags prófessora við ríkisháskóla skorar eindregið á Alþingi að gera viðeigandi breytingar á tillögu til þingsályktunar um fjármálaáætlun fyrir árin 2017 til 2021 svo fyrri samþykkt stjórnvalda um auknar fjárveitingar til háskólamála, til samræmis við fjárveitingar Norðurlandanna, verði náð á tímabilinu.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert