Short sigraði Jóhann í Flugfélagseinvígi

Jóhann Hjartarson og Nigel Short að tafli í Nuuk Center. …
Jóhann Hjartarson og Nigel Short að tafli í Nuuk Center. Kim Kielsen, forsætisráðherra Grænlands, fylgist með.

Nigel Short fór með sigur af hólmi gegn Jóhanni Hjartarsyni í Flugfélagseinvígi Hróksins í Nuuk. Einvígið markaði upphafið að árlegri skákhátíð í höfuðborginni, en þetta er þriðja ferð liðsmanna Hróksins til Grænlands á árinu. 

„Asii Chemnitz Narup, borgarstjóri í Nuuk, flutti setningarávarp og sagði að Hrókurinn væri ávallt sérstaklega velkomin til Grænlands. Hún rifjaði upp að skáklandnámið hefði byrjað árið 2003 og síðan hefði Hrókurinn skipulagt um 50 ferðir til Grænlands og kynnt töfraheim skáklistarinnar fyrir þúsundum barna og fullorðinna,“ segir í fréttatilkynningu.

Þá kemur fram að mikill fjöldi hafi lagt leið sína í Nuuk Center til að fylgjast með meisturunum. Tefldar hafi verið fjórar atskákir og hafi þær allar verið afar spennandi og skemmtilega tefldar. Tveimur fyrstu skákunum lauk með jafntefli, en Jóhann vann góðan sigur í þriðju skákinni. Short tókst að jafna metin í lokaskákinni og því voru tefldar tvær hraðskákir til að fá úr því skorið hvor yrði Flugfélagsmeistarinn 2016. Meistararnir unnu hvor sína skákina og þurftu því að tefla hreina úrslitaskák um titilinn. Þar vann Short með vel útfærðri sókn.

Næstu daga heimsækja liðsmenn Hróksins skóla, athvörf og fangelsi, auk þess sem Short teflir fjöltefli við liðsmenn skákfélagsins í Nuuk og slegið verður upp hraðskákmóti. 

Grænlenskir skákáhugamenn á öllum aldri notuðu tækifærið og tefldu í …
Grænlenskir skákáhugamenn á öllum aldri notuðu tækifærið og tefldu í Nuuk Center.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert