Felur í sér mikla réttarbót

Ólöf Nordal innanríkisráðherra lagði fram frumvarpið.
Ólöf Nordal innanríkisráðherra lagði fram frumvarpið. mbl.is/Árni Sæberg

Ólöf Nordal innanríkisráðherra segir að stofnun nýs dómstigs, Landsréttar, feli í sér mikla réttarbót. Með honum sé tryggð milliliðalaus sönnunarfærsla á tveimur dómstigum.

Frumvarp um millidómstig var samþykkt á Alþingi í morgun. 

Frétt mbl.is: Frumvarp um millidómstig samþykkt

„Ég vil þakka allsherjarnefnd Alþingis og þingheimi öllum fyrir frábært samstarf í tengslum við þetta mál og óska landsmönnum öllum til hamingju með þetta framfaraskref,“ skrifaði Ólöf, sem lagði frumvarpið fram, á Fésbókarsíðu sinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert