Ökumaðurinn sofandi í öndunarvél

Líðan ökumannsins er óbreytt.
Líðan ökumannsins er óbreytt. mbl.is/Ómar Óskarsson

Ástand mannsins sem var fluttur með þyrlu í fyrradag eftir umferðarslys sem varð á Suðurlandsvegi skammt frá Hellu er enn óbreytt og hann er sofandi í öndunarvél samkvæmt upplýsingum frá Landspítala.

Maðurinn var ökumaður bifreiðar sem valt skammt frá söluskálanum við Landvegamót á Hellu. Tveir farþegar voru í bílnum sem voru taldir minna slasaðir og voru þeir fluttir með sjúkrabíl á sjúkrahús eftir slysið.

Frétt mbl.is: Umferðarslys á Suðurlandsvegi

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert