Kristófer Már Maronsson, nýkjörinn formaður Stúdentaráðs, segir að frumvarp menntamálaráðherra um heildarendurskoðun laga um Lánasjóð íslenskra námsmanna líti við fyrstu sýn út fyrir að bjóða upp á mun betri kjör en núverandi kerfi gerir.
Þar kemur m.a. fram að námsmenn í fullu námi geti fengið 65 þúsund krónur í beinan styrk á mánuði í alls 45 mánuði og að nemendur fái fulla framfærslu í stað 90%.
„Ég hef ekki fengið frumvarpið í hendurnar og á eftir að skoða það betur en þetta virðist vera í miklu samræmi við það sem Stúdentaráð hefur verið að berjast fyrir undanfarin ár. Þarna er styrkjakerfi að norrænni fyrirmynd og menn geta fengið beinan styrk án þess að taka námslán,“ segir Kristófer Már, sem er hrifinn af hvötunum að baki frumvarpinu þar sem námsmenn séu hvattir til að standa sig vel í náminu.
Spurður hvort 65 þúsund krónur sé nægilega há upphæð segir Kristófer hana vera góða byrjun. „Ég geri ráð fyrir því, ef þetta verður að lögum, að stúdentahreyfingar muni berjast fyrir því að fá hækkun á þessu á næstu árum. En þetta er mikil kjarabót fyrir þá sem fá engan styrk nú þegar," segir hann.
„Fyrir alla þá sem eru ekki á námslánum en eru að standast kröfur um námsframvindu þá er þetta mikil kjarabót,“ segir hann og bætir við að allir geti verið sammála um að það sé frábært mál að fá framfærsluna úr 90% í 100%.