Tvær bifreiðar lentu saman skammt frá Fjarðarkaupum í Hafnarfirði upp úr hádegi í dag samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins.
Einn var fluttur á slysadeild Landspítalans í kjölfarið en ekki liggur fyrir hversu alvarleg meiðsl hans eru.