Hjólaðir voru 405.969 kílómetrar af 5.393 þátttakendum í átakinu Hjólað í vinnuna í ár. Átakinu lauk á þriðjudaginn en það stóð yfir í þrjár vikur.
Sigríður Inga Viggósdóttir, sviðsstjóri almenningsíþróttasviðs ÍSÍ, segir þátttöku hafa verið aðeins minni en undanfarin ár en hjólað var um 60.000 km styttra en í fyrra.
Þegar farið var af stað með Hjólað í vinnuna fyrir 14 árum voru 533 þátttakendur svo fjölgunin hefur verið gríðarleg. „Ég held að ég geti alveg sagt það að Hjólað í vinnuna eigi stóran þátt í aukinni hjólamenningu á Íslandi. Það eru margir sem hafa byrjað að hjóla og tileinkað sér þann lífsstíl í kringum verkefnið. Vinnustaðir hafa líka staðið sig vel að bæta aðstöðu við starfsmenn og sveitarfélög hafa bætt hjólreiðarstíga,“ segir Sigríður í umfjöllun um átakið í Morgunblaðinu í dag.