Kona féll af hestbaki við Mánagrundarsvæðið í gærdag þegar hestur hennar fældist. Óhappið bar að með þeim hætti að konan var á ferð á hrossi sínu eftir reiðstíg þegar torfæruhjóli var ekið á mikilli ferð fram hjá þeim.
Hesturinn fældist sem fyrr sagði með fyrrgreindum afleiðingum.
Konan fann fyrir eymslum í baki og hálsi eftir byltuna og ætlaði að leita sér læknisaðstoðar ef þörf krefði.