Margir unnu milljónir í kvöld

Þrátt fyrir að enginn fengi fyrsta vinning kvöldsins í EuroJackpot-lottóinu, sem hljóðaði upp á tæplega tvo milljarða króna, gekk annar vinningurinn út. Fjórir skipta honum með sér og fær hver um sig tæplega 35 milljónir króna.

Hins vegar skipta tíu manns með sér þriðja vinningnum og fær hver í sinn hlut tæpar fimm milljónir króna. Vinningsmiðar kvöldsins voru flestir keyptir í Þýskalandi eða sjö talsins, en einnig voru vinningsmiðar keyptir í Hollandi, Finnlandi og Svíþjóð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert