Menntaskólinn í Reykjavík útskrifaði í dag stúdenta frá skólanum í 170. sinn, og fór athöfnin fram í Háskólabíói. Að þessu sinni voru brautskráðir alls 206 stúdentar, 92 piltar og 114 stúlkur. Þar af voru 8 úr fornmáladeildum, 27 úr nýmáladeildum, 47 úr eðlisfræðideildum og 124 úr náttúrufræðideildum.
Stefanía Katrín J Finnsdóttir var dúx en hún hlaut einkunnina 9,67. Fjölmargir aðrir hlutu verðlaun fyrir framúrskarandi námsárangur.
Yngvi Pétursson, rektor skólans, kom víða við í ræðu sinni. Hrósaði hann nemendum fyrir blómlegt félagslíf og frábæran árangur í hinum ýmsu keppnum en MR sigraði í spurningakeppninni Gettu betur, og var það 20. sigur skólans í 30 ára sögu keppninnar. Þá sigraði lið MR einnig í rökræðukeppninni MORFÍS.
Þá vék hann að baráttu skólans við yfirvöld og þeim þrengingum sem skólinn stendur frammi fyrir þegar nám til stúdentsprófs verður stytt úr fjórum árum í þrjú. Sagði hann að hagur nemenda þyrfti að njóta forgangs í ákvörðun um menntun en ekki að eingöngu sé litið til hagræðingar í rekstri. „Slíkur sparnaður mun nokkuð örugglega á endanum reynast okkur dýrkeyptur.“
Fjölmargir eldri stúdentar frá skólanum voru viðstaddir athöfnina eins og venja er. Elsti afmælisstúdentinn var Rögnvaldur Þorkelsson sem varð stúdent 1936 og er því 80 ára stúdent.