Harður árekstur varð í kvöld á gatnamótum Langholtsvegar og Sæbrautar í Reykjavík þar sem tvær bifreiðar lentu saman.
Þrír sjúkrabílar voru sendir á staðinn og tveir dælubílar samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. Þá var klippum beitt til að ná farþegum úr bifreiðunum.
Þrír voru fluttir á slysadeild Landspítalans í kjölfarið en ekki liggur fyrir hversu alvarleg meiðsl þeirra eru eru.