Hafnfirðingar með vorhátíð á Völlunum

Vallahverfi í Hafnarfirði.
Vallahverfi í Hafnarfirði. mbl.is/RAX

Vorhátíð Vallahverfis í Hafnarfirði og lokahátíð Hraunvallaskóla fer fram fyrir framan Hraunvallaskóla á morgun, laugardag.

Fjölbreytt atriði verða á boðstólum, s.s. Jóhanna Ruth úr Ísland Got Talent, Leikhópurinn Lotta, Zumba frá Reebok, Gospelkór Ástjarnarkirkju ásamt krökkum úr Hraunvallaskóla.

Gói kynnir og hefst dagskráin kl. 14. Nemendur í 8. bekk Hraunvallaskóla sjá um veitingar. Reebok Fitness á Völlunum verður með opið hús sama dag frá kl. 10-13, Ásvallalaug verður með frítt í sund á sama tíma og sundknattleiksdeild SH kynnir íþróttina í sundlauginni.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert