Delta bætir við flugleið

Farþegum var boðið upp á veitingar í tilefni dagsins.
Farþegum var boðið upp á veitingar í tilefni dagsins. Ljósmynd/Isavia

Flugfélagið Delta hóf í gær flug á milli Keflavíkurflugvallar og Minneapolis.

Flugfélagið mun bjóða upp á daglegt flug á milli áfangastaðanna fram til 6. september, en þetta er annar áfangastaður Delta frá Keflavíkurflugvelli því félagið flýgur einnig til New York JFK.

Delta hóf flug til Íslands árið 2011 og flaug þá fimm sinnum í viku, en nú eru flugin orðin 15 í hverri viku að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá Isavia.

Flugfélögum sem fljúga til Keflavíkurflugvallar hefur fjölgað til muna á síðustu árum. Í ár fljúga 11 félög þangað yfir allt árið, þar á meðal Delta, en þau voru aðeins tvö árið 2005 og í sumar verða flugfélögin 25 og hafa aldrei verið fleiri. Til samanburðar má nefna að sumarið 2009 lentu flugvélar frá sjö flugfélögum í reglubundnu flugi á Keflavíkurflugvelli.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert