Davíð Oddsson forsetaframbjóðandi hefur aflýst áætluðum fundi í dag í Vík í Mýrdal og næstu daga á Höfn í Hornafirði, Reyðarfirði og á Egilsstöðum vegna alvarlegra veikinda móður sinnar.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá framboðinu.
Þar segir að veikindin hafi ágerst síðustu daga og Ástríður, kona Davíðs, hafi verið við hlið hennar og því ekki tekið þátt í kosningafundum.