Interpol lýsir eftir Íslendingi

Skjáskot af Interpol.int

Alþjóðalögreglan Interpol lýsir eftir Íslendingi á vefsíðu sinni. Maðurinn, Jón Valdimar Jóhannsson, er eftirlýstur vegna alvarlegrar líkamsárásar en það eru yfirvöld á Íslandi sem lýsa eftir honum.

Jón Valdimar er 32 ára gamall, 1,76 m á hæð og 87 kíló samkvæmt auglýsingunni. Eru þeir sem hafa upplýsingar um ferðir hans beðnir um að hafa samband við lögregluna á Íslandi eða Interpol.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert