„Hér eru allir á kafi í garðverkum og allt voðalega yndislegt. Það lifnar svo yfir öllum þegar sólin skín,“ segir Líney Sigurðardóttir, íbúi á Þórshöfn, en veðurblíða er í bænum í dag. Eins og fram kom í frétt mbl.is fyrr í dag gæti hiti fyrir norðan og austan náð langleiðina í 20 stig í dag.
Líney smellti mynd af tvíburabræðrunum Sæmundi og Mikael þar sem þeir höfðu tjaldað og farið í útilegu í garðinum heima hjá sér, ásamt vinum sínum. „Þau nutu sín vel og máttu eiginlega ekki vera að því að setjast niður í myndatökuna því þau voru að veiða hunangsflugur í gróðurhúsið hans afa,“ segir hún og hlær.
Skólaslit verða í grunnskólanum á Þórshöfn í dag og er því mikil gleði og spenna í börnunum í bænum, að sögn Líneyjar. Gleðin sé þó ekki minni hjá þeim sem eldri eru í bænum, en garðsett og grill hafi víða verið dregin fram. „Það er verið að fylla á grillkjötsbirgðirnar í búðinni og draga fram garðsettin sem var búið að njörva rækilega niður,“ segir hún. „Það er allt að lifna við í bænum.“
Samkvæmt Veðurstofu Íslands verður veður gott fyrir norðan og austan alla helgina og er því enginn vafi á því að helgin mun nýtast vel í hvers kyns leik og starfi utandyra.