Tveir fengu annan vinninginn

Tveir heppnir lottóspilarar skipta með sér öðrum vinningi lottósins í kvöld en fyrsti vinningurinn, sem hljóðaði upp á tæpar 34 milljónir króna, gekk ekki út.

Vinningshafarnir tveir fá hvor í sinn hlut tæplega 420 þúsund krónur. Þá voru tveir með fjórar tölur réttar í Jókernum og fær hvor um sig 100 þúsund krónur að launum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert