Tveir slösuðust í hörðum árekstri

mbl.is/Hjörtur

Harður árekstur varð skömmu eftir klukkan 17:00 í dag á mótum Hafnarfjarðarvegar og Álftanesvegar. Voru sjúkrabílar og tækjabíll sendir á staðinn samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins.

Tvær bifreiðir lentu saman og voru tveir fluttir á slysadeild. Bifreiðirnar eru mikið skemmdar. Ekki er talið að um mjög alvarleg meiðsl sé að ræða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert