Laust fyrir klukkan þrjú í nótt kom ölvaður Englendingur inn á lögreglustöðina við Hverfisgötu að leita sér hjálpar.
Í dagbók lögreglu segir að maðurinn hafi verið nýkominn til landsins en týnt félögum sínum við drykkju. Í ofanálag hafi maðurinn ekki munað hvar hann hafði pantað sér gistingu.
Eftir töluverða leit tókst að koma honum á gististaðinn.