Bjóst við byssu við hnakkann á sér

Sólmundur og hesturinn Steinríkur sem hefur staðið sig vel í …
Sólmundur og hesturinn Steinríkur sem hefur staðið sig vel í hestaleigunni, en hann kemur úr Landeyjum, er mjúkur og fer vel með fólk. mbl.is/RAX

„Við byrjuðum smátt og tókum engin lán, enda fórum við af stað í kreppunni. Við byrjuðum með fimmtán hross, lélega hnakka og samtíninga. Nú eru hestarnir orðnir sextíu og við erum með starfsfólk allt árið. Þetta hefur vaxið jafnt og þétt og við erum að sjóast,“ segir Sólmundur Sigurðsson, sem ásamt konu sinni Sjöfn Sveinsdóttur, á og rekur hestaleiguna Sólhesta í Borgargerði undir Ingólfsfjalli.

„Við vissum ekkert hvað við vorum að fara út í þegar við byrjuðum, en Sjöfn grunaði að við yrðum ansi bundin, sem varð raunin,“ segir Sólmundur og Sjöfn bætir við:

„Þegar maður á fyrirtæki sjálfur nennir maður þessu, þá leggur maður ýmislegt á sig í vinnu. Þó að þetta sé mikil vinna er þetta líka gaman. Núna þykjumst við kunna þetta og allt er orðið miklu léttara. Ég var mjög neikvæð fyrsta árið, fannst ég vera innilokuð og múlbundin hér heima, en þetta hefur allt náð góðu jafnvægi núna. Ég fer í tvær hestaferðir yfir sumarið, eina kvennaferð með vinkonum mínum og aðra með útreiðarhópi sem við hjónin erum bæði í, en Sólmundur hefur ekki komist með í þær undanfarið.

Við bætum það upp á haustin og förum alltaf til útlanda í nóvember, því þá er sumartraffíkin búin og vetrarumferðin ekki farin af stað. En hún kemur á fullum þunga í desember, enda er það góður mánuður, þá kemur svo mikið af norðurljósafólki til landsins.

Veturinn er alltaf að batna, það komu sjö hundruð manns til okkar núna í mars, sem er hundrað fleiri en við fengum í júní síðasta sumar. Það fjölgar í hverjum einasta mánuði á þessu ári frá því á sama tíma í fyrra.“

Skælbrosandi ferðamenn koma heim í hlað úr fjöruferð á hestbaki.
Skælbrosandi ferðamenn koma heim í hlað úr fjöruferð á hestbaki. mbl.is/RAX

Slengdi henni aftur á bak

Þau segja mestu söluna vera í styttri ferðirnar, þá sé riðið um valdar leiðir á láglendinu í nágrenninu. „Reiðtúr inn í Reykjadal er mjög vinsæll, þá fer fólk og baðar sig í heita læknum. Við erum líka með fjöruferðir í Þorlákshöfn og svo eru tvær lengri ferðir yfir sumarið.“

Fólkið sem kemur til þeirra er á öllum aldri og af báðum kynjum, yngstu börnin eru um tveggja ára og sá elsti sem hefur farið í reiðtúr hjá þeim var á tíræðisaldri, 92 ára þýskur karlmaður. Og auðvitað getur alltaf eitthvað komið upp á, hestar eru jú lifandi skepnur og því er ævinlega einhver áhætta sem fylgir því að fara á bak.

„Við fengum til okkar hjón þar sem konan var 84 ára og karlinn 86. Ég fór með þau í klukkutíma ferð en þau duttu bæði af baki. Við vorum á feti þegar fugl flaug upp og hrossunum brá, fyrst datt konan og þá hrökk hestur karlsins við svo að hann datt líka. Konan var hörð að halda áfram svo ég lyfti undir rassinn á henni og slengdi henni á bak, en karlinn neitaði að fara lengra, svo að Sjöfn kom og sótti hann. Ég kláraði túrinn með kellu og þau drukku kaffi með okkur eftir það og borguðu með bros á vör.“

Sólmundur og Sjöfn hjá fornbílnum Volvo Amazon sem bjargaði lífi …
Sólmundur og Sjöfn hjá fornbílnum Volvo Amazon sem bjargaði lífi Sólmundar í viðureign við Rússa. mbl.is/RAX

Vissi ekki fyrr til en hún var komin á hnén og vildi velta sér

Sólmundur er óstöðvandi þegar hann fer að rifja upp skemmtilegar uppákomur.

„Eitt sinn kom heldur þung norsk kona með hópi hingað og það var nokkurt bras að koma henni á bak í upphafi ferðar. Ég teymdi undir konunni því hún var óvön, en í myndastoppi undir Ingólfsfjalli gleymdi ég mér og leit af merinni sem hún var á og vissi ekki fyrr til en hún var komin niður á hnén og gerði sig líklega til að fara að velta sér með konuna á baki. Ég kippti eldsnöggt í tauminn til að varna því en þá rann kella aftur af henni. Allt fór vel og hún kláraði túrinn,“ segir Sólmundur og bætir við að oft sé það ánægðasta fólkið sem lendi í slíkum óvæntum uppákomum.

„Það er fólkið sem þykist vera með allt á hreinu sem finnst aldrei neitt nógu gott. Eitt sinn kom rússnesk fjölskylda til okkar, forríkt lið og svolítið skuggalegt. Það var skelfilegt, þau voru með eilíft vesen, sérþarfir og kröfur. Við skiptum hópnum upp eftir getu og ég fór með tvær kellur og krakka í stuttan reiðtúr. En það kom púðluhundur hér frá nágranna mínum og glefsaði í hæklana á hrossinu sem krakkinn sat og fældist við. Ég var svo ljónheppinn að krakkinn datt strax af baki, áður en hesturinn fór á ferð, en konurnar görguðu og hótuðu lögreglu. Þær voru öskuvondar og ég kom þeim með herkjum aftur heim. Ég átti von á að karlarnir settu byssu við hnakkann á mér, en gæfa mín fólst í því að þeir ráku augun í bílskúrsgluggann hjá mér og sáu fornbílinn minn, Volvo Amazon, og urðu uppfullir af áhuga. Þarna bjargaði ég lífi mínu með því að rífa bílinn úr skúrnum og lofa Rússunum að fara á honum í prufutúr. Ef Sjöfn hefði verið heima hefðu þeir fengið að fara á hana líka,“ segir Sólmundur og Sjöfn hlær að bónda sínum, hún er greinilega öllu vön þegar kemur að skopskyni hans.

Þau eru litrík lömbin hjá Sólmundi og Sjöfn og ekkert …
Þau eru litrík lömbin hjá Sólmundi og Sjöfn og ekkert þeirra er alhvítt. mbl.is/RAX

Borða kjötsúpu með gestum

Sólmundur verður sextugur næstkomandi fimmtudag og ætlar að halda veislu af því tilefni.

„Ég ætla að bjóða gestum mínum upp á lambalæri beint frá mínu eigin býli, en við Sjöfn erum með tuttugu kindur hér sem bera, það er mikil frjósemi og nokkrar þrílembdar,“ segir Sólmundur, sem lætur farga sínu fé í Sláturfélagi Suðurlands á Selfossi en tekur kjötið allt heim.

„Ég get ómögulega slátrað þessu sjálfur, það væri ekki hægt að vera með blóðvöll hér innan um ferðamennina,“ segir hann og hlær. Þau nýta kjötið meðal annars í mat sem þau bjóða fólki upp á sem kemur til þeirra í hestaferðir.

„Fólk kann því vel að koma inn til okkar og borða með okkur íslenska kjötsúpu, það er heimilislegt.“

Vinsælt er að fara í reiðtúr í Reykjadalinn og baða …
Vinsælt er að fara í reiðtúr í Reykjadalinn og baða sig í heita læknum.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert