Dánartíðni vegna krabbameina lækkar

Dánartíðni vegna krabbameina hefur lækkað undanfarin ár. Þróun í heildartíðni …
Dánartíðni vegna krabbameina hefur lækkað undanfarin ár. Þróun í heildartíðni nýgengis krabbameina er einnig jákvæð. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Merkja má jákvæða þróun í heildartíðni nýgengis krabbameina. Hjá körlum stöðvaðist hækkunin fyrir um sex árum og hefur tíðnin farið lækkandi síðan þá. Hjá konum hefur tíðnin staðið í stað frá aldamótum en merkja má lækkun á allra síðustu árum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Krabbameinsfélagi Íslands.

Dánartíðni af völdum krabbameina hefur einnig lækkað umtalsvert hjá báðum kynjum en dánartíðnin var nokkuð stöðug frá upphafi og fram til ársins 2000.

„Frá því að Krabbameinsfélag Íslands hóf að skrá öll krabbamein á Íslandi og fram undir árið 2010 var stöðug hækkun á nýgengi krabbameina þegar horft er á öll mein saman, þótt talsverðar breytingar í báðar áttir hafi verið á sumum meinum. Dæmi um slíkar breytingar eru hratt lækkandi tíðni magakrabbameins en hins vegar hækkandi tíðni krabbameina í lungum, brjóstum og blöðruhálskirtli. Nú má merkja jákvæða þróun í heildartíðni nýgengis krabbameina,“ segir í tilkynningunni.

Þriðjungslækkun dánartíðni af völdum brjóstakrabba

Að sögn Laufeyjar Tryggvadóttur, framkvæmdastjóra Krabbameinsskrár, má rekja stærstan hluta lækkunar á dánartíðni hjá konum til þriðjungslækkunar á dánartíðni af völdum brjóstakrabbameins síðustu 20 árin.

„Brjóstakrabbamein er langalgengasta krabbamein kvenna. Þennan góða árangur má bæði rekja til leitarstarfs Krabbameinsfélagsins og til stórstígra framfara í meðferð við  brjóstakrabbameini. Þetta er gott dæmi um það hverju verður áorkað hjá lítilli þjóð fyrir tilstilli hugsjónastarfs félagasamtaka og hágæða heilbrigðisþjónustu sem nær jafnt til alla þegna þjóðfélagsins. Til viðbótar við brjóstakrabbameinið má einnig sjá nokkra lækkun á dánartíðni af völdum fleiri meina, sérstaklega krabbameina í eggjastokkum og ristli,“ segir í tilkynningunni.

Krabbameinsfélag Íslands í Skógarhlíð.
Krabbameinsfélag Íslands í Skógarhlíð. Ljósmynd/Krabbameinsfélagið

Má þakka öflugu tóbaksvarnarstarfi

Hjá körlum munar mest um 20% lækkun á dánartíðni af völdum krabbameina í lungum og blöðruhálskirtli, en þessi tvö mein eru langstærstu skaðvaldarnir af krabbameinum hjá körlum.

„Hinn góða árangur varðandi lungnakrabbameinið má þakka áratugalöngu öflugu tóbaksvarnastarfi hjá Krabbameinsfélaginu og Hjartavernd og jafnframt síðustu ár hjá Lýðheilsustöð og embætti Landlæknis. Stærstan hluta lækkandi dánartíðni af völdum krabbameins í blöðruhálskirtli má væntanlega skýra með hinni miklu aukningu undanfarinna áratuga á skurðaðgerðum þar sem meinið er fjarlægt með því að nema kirtilinn á brott.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert