Datt af hestbaki við Sauðárkrók

Sauðárkrókur.
Sauðárkrókur. Ljósmynd/mats.is

Ein manneskja var flutt á sjúkrahúsið á Akureyri eftir að hafa dottið af hestbaki rétt fyrir utan Sauðárkrók.

Slysið varð um áttaleytið í gærkvöldi.

Annað mál kom á borð lögreglunnar á Sauðárkróki um ellefuleytið í gærkvöldi þegar útafakstur varð á þjóðvegi eitt. Einn var fluttur á sjúkrahúsið á Akureyri.

Ekki er vitað með líðan fólksins að svo stöddu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert