Skýjað með köflum í dag

Spáð er skýjuðu veðri með köflum. Hiti verður á bilinu …
Spáð er skýjuðu veðri með köflum. Hiti verður á bilinu 8 til 15 stig. mbl.is/Styrmir Kári

Spáð er breytilegri átt, 3 til 8 metrum á sekúndu og skýjuðu veðri með köflum en léttir heldur til vestanlands með morgninum.

Dálítil væta verður norðan til fram á kvöld en líkur eru á síðdegisskúrum annars staðar. Hiti verður á bilinu 8 til 15 stig yfir daginn, hlýjast í uppsveitum sunnanlands, samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni. 

Á morgun verður vaxandi suðaustlæg átt, skýjað og rigning suðvestan- og vestantil, 8 til 15 metrar á sekúndu síðdegis en hægari vindur um landið austanvert. Bjartviðri verður norðaustanlands með hlýnandi veðri. Hvessir frekar vestanlands annað kvöld.

Veðurvefur mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert