Landsvirkjun verði skipt upp

Varpað er fram þeirri hugmynd að hagnaður af sölu Landvirkjunar …
Varpað er fram þeirri hugmynd að hagnaður af sölu Landvirkjunar verði lagður í sérstakan auðlindasjóð í eigu þjóðarinnar.

Í nýrri skýrslu sem Samtök iðnaðarins fengu Lars Christensen hagfræðing til að vinna eru lagðar til róttækar breytingar á umhverfi orkufyrirtækja á Íslandi.

Telur hann að yfirburða markaðshlutdeild Landsvirkjunar á sviði orkuframleiðslu hamli eðlilegri samkeppni og valdi því að verðmyndun á markaði kunni að skekkjast.

Af þeim sökum gerir hann tillögu um að tilteknar virkjanir verði seldar út úr fyrirtækinu og þannig verði til fleiri og smærri fyrirtæki á sviði orkuvinnslu í landinu. Þar að auki leggur hann til að Landsvirkjun, í breyttri og smækkaðri mynd, verði seld til einkaaðila, að því er fram kemur í umfjöllun um mál þetta í ViðskiptaMogganum í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert