IKEA innkallar kæli- og frystiskápa

FROSTFRi kæli- og frystiskápur.
FROSTFRi kæli- og frystiskápur. Ljósmynd/IKEA

IKEA hefur innkallað til viðgerðar alla FROSTFRI kæli- og frystiskápa sem framleiddir voru frá viku 45, 2015 til viku 7, 2016, vegna hættu á rafstuði.

Stjórnborðið, sem er efst á skápnum þegar hurðin stendur opin, getur losnað eða dottið alveg af og skapað hættu á beinni snertingu við rafmagnsvíra. Til að leysa vandamálið þarf að fá aðstoð rafvirkja. Sú þjónusta er viðskiptavinum að kostnaðarlausu, samkvæmt tilkynningu frá IKEA.

Meðan bið eftir þjónustu stendur eru viðskiptavinir beðnir að taka tækin úr sambandi og hafa samband við Rafha, þjónustuaðila  Electrolux raftækja  á Íslandi, til að finna hentugan tíma fyrir viðgerð. Utan opnunartíma Rafha er hægt að hafa samband við þjónustuver IKEA.

Engin slys á fólki

„Skilningur er á að þetta getur haft óþægindi í för með sér og sett viðskiptavini í erfiða stöðu. IKEA hafa ekki borist neinar tilkynningar um slys á fólki eða um að fólk hafi fengið rafstuð en hjá IKEA er ekki tekin áhætta þegar öryggi er annars vegar. IKEA þakkar viðskiptavinum fyrir skilning og góðan samstarfsvilja,“ segir í tilkynningunni.

Upplýsingar um hvenær tækið var framleitt má finna á dagsetningar-stimplinum sem sést ef neðsta skúffan er fjarlægð. Miðinn með stimplinum er vinstra megin innan í skápnum. Dagsetningarstimpillinn felst í fjórum tölum efst í hægra horni miðans. Vörur með stimpli frá 1545 til 1607 falla undir þessa innköllun.

Vörurnar hafa verið seldar í Svíþjóð, Noregi, Danmörku, Finnlandi, Þýskalandi,  Frakklandi, á Íslandi, Spáni og Ítalíu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert