Atvinnuviðtal endaði með hnefahöggum

Það er í nógu að snúast hjá lögreglunni á Suðurlandi.
Það er í nógu að snúast hjá lögreglunni á Suðurlandi. Ljósmynd/Lögreglan

Lögreglan á Suðurlandi kom að 358 verkefnum í síðustu viku sem er talsverð aukning frá því sem verið hefur undanfarið. Lögreglan handtók m.a. par sem er grunað um þjófnað auk þess sem annað þeirra er grunað um akstur undir áhrifum fíkniefna. Lögreglan stöðvaði fíkniefnasendingu á flugvellinum í Höfn í Hornafirði og þá kom til átaka á milli manna í atvinnuviðtali í Hveragerði.

Lögreglan greinir frá þessu í vikulegu yfirliti sínu.

Með fartölvur, sláttuvél, gasgrill og flatskjá í bílnum

Hún segir m.a. frá því, að karl og kona hafi verið handtekin á Suðurlandsvegi í Ölfusi seint á laugardagskvöld. Þau voru í bifreið sem konan ók. Að sögn lögreglu bar konan merki þess að vera undir áhrifum fíkniefna við aksturinn. Í ljós kom að hún var ekki með ökuréttindi, en hún hafði verið svipt þeim. Í bifreiðinni voru ýmsir munir sem grunur lék á að væri þýfi.

Lögreglan segir að parið hafi verið yfirheyrt í gær. Konan gekkst við sviptingar- og fíkniefnaakstrinum. Hins vegar neituðu bæði þjófnaði á þeim munum sem voru í bílnum en gátu ekki gert grein fyrir þeim. Þar ræðir um, meðal annars, fartölvur, sláttuvél, gasgrill og flatskjár. Munirnir voru haldlagðir og eru í geymslu í lögreglustöðinni á Selfossi. Sakni einhver slíkra muna þá er hægt að leita upplýsinga hjá lögreglu í síma 444-2010.

Lét hnefana tala

Þá kom karlmaður á lögreglustöðina á Selfossi síðdegis á laugardag og kærði annan mann fyrir líkamsárás. Maðurinn sem varð fyrir árásinni hafði ætlað að ráða hinn manninn í vinnu. Þeim sinnaðist í viðræðum sínum með þeim afleiðingum að sá sem var í atvinnuleit réðist á hinn með hnefahöggum sem leiddi til tannbrots. Atvikið átti sér stað í Hveragerði og er málið í rannsókn.

Fíkniefnasending stöðvuð á flugvellinum í Höfn í Hornafirði

Þá segir af lögreglumönnum á Höfn í Hornafirði sem fóru sl. fimmtudag á flugvöllinn þar sem þeir lögðu hald á pakka sem kom með flugi frá Reykjavík. Grunur lék á um að í pakkanum væru fíkniefni, og reyndist það á rökum reist. Skömmu síðar kom maður til að sækja pakkann og var hann handtekinn. Maðurinn bar því við að hann hefði verið sendur af öðrum manni til að sækja pakkann. Sá maður var handtekinn og færður til yfirheyrslu.

Í pakkanum var amfetamín og kannabis, en ekki í miklu magni. Maðurinn sem var handtekinn viðurkenndi að eiga efnin en tók fram að þetta hafi einungis verið ætlað til eigin neyslu. Efnin verða send til vigtunar og rannsóknar. 

Átján umferðaróhöpp og slys í síðustu viku

Loks voru lögreglumenn á Suðurlandi kallaðir til vegna 18 umferðaróhappa og slysa í liðinni viku. Alvarlegast var bílvelta í Reynisfjalli þar sem fjórir bandarískir ferðamenn voru á leið upp fjallið í ársgömlum Pajero-jeppa. Á miðri leið snerist þeim hugur og ökumaðurinn bjó sig undir að snúa við. Það gekk brösuglega og leist farþegum ekki meira en svo á að þeir yfirgáfu jeppann á meðan ökumaðurinn lyki við að snúa við. Ekki tókst betur til en svo að bifreiðin fór aftur á bak út af veginum og valt margar veltur niður hlíðina og stöðvaðist á hvolfi ofan í skurði. Ökumaðurinn kastaðist út úr bílnum á miðri leið. Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð til og flutti manninn á slysadeild Landspítala. Við skoðun þar kom í ljós að maðurinn var með eitt brotið rifbein sem verður að teljast farsællega vel sloppið miðað við aðstæður, að sögn lögreglu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert