Mál gegn lögreglumanni fellt niður

Lögreglustöðin í Reykjavík.
Lögreglustöðin í Reykjavík. mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Héraðssaksóknari hefur fellt niður mál lögreglumanns sem sakaður var um óeðlileg samskipti við brotamenn. Lögreglumaðurinn var leystur frá störfum um miðjan janúarmánuð vegna málsins, en hann hafði áður verið fluttur til í starfi innan lögreglunnar vegna ásakana um hvernig samskiptum hans væri háttað við brotamenn.

Kolbrún Benediktsdóttir varahéraðssaksóknari staðfestir að málið hafi verið fellt niður í samtali við mbl.is, en hún segir að ekkert bendi til sektar mannsins. „Það var ekkert sem benti til refsiverðs brots,“ segir hún og bætir við að mjög djúpt hafi verið farið í málið og rannsóknin verið viðamikil.

Málið fjallar um meint óeðlileg samskipti lögreglumannsins við brotamenn og segir Kolbrún að ekki sé hægt að segja að maðurinn hafi ekki átt í samskiptum við brotamenn. Það felist í starfinu. Það hafi aftur á móti ekki komið fram neitt við rannsóknina sem benti til þess að slík samskipti hafi verið óeðlileg. Rúv sagði fyrst frá málinu.

Óhefðbundið og nýstárlegt mál fyrir saksóknara

Eftir áramót var gerð breyting á saksóknaraembættum hérlendis og rannsókn á lögreglumönnum og aðgerðum þeirra var færð undir nýtt embætti héraðssaksóknara. Ríkissaksóknari varð í leiðinni að öðru stigi ákæruferlisins þangað sem hægt er að kæra niðurstöðuna til ríkissaksóknara.

Þetta mál er þó óhefðbundið þar sem ekki er um raunverulegan brotaþola að ræða eins og t.d. í ofbeldismálum. Kolbrún segir að afrit af niðurstöðunni verði send á ríkissaksóknara og embættið geti þá yfirfarið þessa ákvörðun og í sjálfu sér tekið það til skoðunar ef vilji sé fyrir því. Aftur á móti sé ekki komið fordæmi í svona málum og því sé ekki víst hvernig málið verði afgreitt. Auk þess geti vitanlega lögreglan eða þeir sem hafi í upphafi talið pott brotinn í málinu kært niðurstöðuna.

Kolbrún Benediktsdóttir saksóknari.
Kolbrún Benediktsdóttir saksóknari. Ljósmynd/Kolbrún Benediktsdóttir

Upphaflega tók embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu málið til skoðunar og segir Kolbrún að það hafi verið að beiðni ríkissaksóknara sem á þeim tíma fór með rannsókn á málefnum lögreglunnar. Ekki hafið verið um eiginlega rannsókn að ræða heldur skoðun. Hún segir að lögreglan hafi tekið málið saman en það hafi verið saksóknara að hefja eiginlega rannsókn málsins.

Stjórnaði tálbeituaðgerð við Hótel Frón

Lögreglumaðurinn sem um ræðir var leystur frá störfum um miðjan janúarmánuð, en hann var meðal annars sagður hafa stýrt tál­beituaðgerð við Hót­el Frón í fyrra sem klúðraðist, en hol­lensk kona sem hafði flutt inn fíkni­efni ákvað að aðstoða lög­reglu en var að lok­um dæmd í ell­efu ára fang­elsi.

Lýstu níu sam­starfs­menn lög­reglu­manns­ins van­trausti á hann síðasta vor og vísuðu áhyggj­um sín­um til Friðriks Smára Björg­vins­son­ar, sem þá var yf­ir­maður deild­ar­inn­ar. Eft­ir að þeir fengu eng­in viðbrögð var farið með málið lengra til Sig­ríðar og var í fram­hald­inu ákveðið að færa full­trú­ann til í starfi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert