Niðurdæling koltvísýrings í vatni gæti reynst öflugt vopn gegn loftslagsvanda

Hér má sjá steingerðan koltvísýring í borkjarna sem aflað var …
Hér má sjá steingerðan koltvísýring í borkjarna sem aflað var á Hellisheiði til að staðfesta bindingu koltvísýrings (CO2) í basalti. Ljósmynd/CarbFix

Vísinda- og tæknimönnum Orkuveitu Reykjavíkur (OR), Háskóla Íslands o.fl. tókst að binda allt að 95% af gróðurhúsalofttegundinni koltvísýringi (CO2) sem steintegund í basaltberglögunum við Hellisheiðarvirkjun.

Ferlið tók einungis tvö ár en áður var talið að það tæki aldir eða árþúsundir. Niðurstöðurnar gefa til kynna að fundið sé öflugt vopn gegn loftslagsvandanum.

„Við leystum koltvísýringinn upp í vatni sem dælt var niður í jörðina. Þegar vatnið kemst í snertingu við ungt og hvarfgjarnt basaltið leysist bergið upp og við það losna efni eins og kalsíum, magnesíum og járn. Efnin bindast uppleysta koltvísýringnum og mynda m.a. karbónatsteindir,“ segir dr. Edda Sif Pind Aradóttir verkefnisstjóri í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert