Kallar á komugjöld í innanlandsflugi

Skattheimta hefur á sér ýmsar hliðar.
Skattheimta hefur á sér ýmsar hliðar. mbl.is/Kristján Kristjánsson

Innheimta komugjalda af erlendum ferðamönnum kallar á að leggja þurfi samsvarandi gjald á farþega með innanlandsflugi.

Þetta segir Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, í Morgunblaðinu í dag. Þetta sé vegna skuldbindinga Íslands í EES-samningnum. Engin leið sé framhjá því.

Verði komugjaldaleiðin ofan á væri einfaldara og skynsamlegra að hafa gjaldið lægra og taka það allt árið, svo ekki sé verið að skattleggja sumarfrí íslenskra fjölskyldna, segir Ragnheiður Elín.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert