Einn eftir í einstaklingskeppninni

Hafliði á fullri ferð.
Hafliði á fullri ferð. Ljósmynd/WOW Cyclothon

Hjólareiðakappinn Hafliði Richard Jónsson er einn eftir í einstaklingskeppni WOW Cyclothon en hann nálgast nú óðum Vík í Mýrdal.

Alls hófu sjö manns leik í einstaklingskeppninni á þriðjudag en fjórir hættu keppni.

Ei­rík­ur Ingi Jó­hanns­son kom fyrstur í mark rétt fyrir klukkan níu í morgun. Hinn ítalski Omar Di Felice varð annar.

Þá hafa rúmlega 10,5 milljónir króna safnast í áheitasöfnun keppninnar.

Fylgj­ast má með kepp­end­um í beinni hér

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert