Öll liðin komin í mark

Öll liðin sem tóku þátt í WOW Cyclot­hon-keppn­inni eru kom­in í mark við Krísuvíkurveg en síðustu lið komu til Reykjavíkur í kvöld, þar á meðal DeCode XX og Marel heppnis. Einn keppandi, Hafliði Richard Jónsson, er enn á ferðinni í ein­stak­lingskeppn­inni, en hann hjólar nú undir Eyjafjöllum.

Rúmlega 10,6 milljónir króna hafa nú safnast í áheitasöfnun keppninnar.

Lið Olís-HFR fór með sig­ur af hólmi í B-flokknum, þar sem tíu keppendur eru í hverju liði, Park Inn by Radi­son sigraði í A-flokknum, þar sem aðeins fjór­ir eru í hverju liði, og þá vann Eiríkur Ingi Jóhannsson einstaklingskeppnina.

Hér má skoða tíma allra liða og einstaklinga í keppninni

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert