Fólk hvatt til að nýta sér leiðakerfið

„Vegna fjölda fyrirspurna hvetur Icelandair þá sem áhuga hafa á ferð á leikinn á EM 2016 gegn Englandi á mánudaginn að nýta áætlunarflug Icelandair til áfangastaða í námunda við Nice og til fjölmargra fleiri áfangastaða í Evrópu með ýmsa tengiflugsmöguleika,“ segir í fréttatilkynningu frá Icelandair. Enn séu laus sæti til Parísar, Barcelona, Mílanó, Brussel, London, Amsterdam, Genfar, Kaupmannahafnar og fleiri borga um helgina og góðar samgöngur þaðan til Nice.

„Allar flugvélar Icelandair eru uppteknar í reglulegu áætlunarflugi félagsins um þessar mundir og því ljóst að ekki er unnt að bjóða upp á stórfellt beint leiguflug vegna leiksins. Því hvetjum við áhugafólk til þess að nýta þá möguleika sem leiðakerfið felur í sér. Þá er rétt að taka fram að Icelandair mun ekki hafa tök á að bjóða upp á pakkaferðir með aðgöngumiðum, gistingu o.s.frv. í tengslum við þennan leik,“ segir enn fremur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert