Leita ferðalangs á Arnarvatnsheiði

mbl.is/Eggert

Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Vesturlandi og Húnavatnssýslum hafa verið kallaðar út til leitar að ferðalangi á Arnarvatnsheiði.

Viðkomandi skilaði sér ekki til samferðamanna sinna á fyrirfram ákveðnum tíma og tilkynntu þeir þá málið til lögreglu sem óskaði eftir liðsinni björgunarsveita. 

Á þessari stundu er björgunarsveitir á leið á staðinn en ekki er vitað nánar um málavexti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert