Minni háttar Skaftárhlaup er líklega hafið

Skaftárhlaupið sem nú er hafið er talið minni háttar.
Skaftárhlaupið sem nú er hafið er talið minni háttar. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Rennsli Skaftár við Sveinstind hefur verið að aukast síðustu daga og minni háttar aukning hefur einnig orðið í rafleiðni. Sumarleysing á jökli eða rigningar orsaka ekki hið aukna rennsli. Þessar athuganir þýða að Skaftárhlaup er líklega hafið.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands. 

Rennslið við Sveinstind er nú um 112 rúmmetrar á sekúndu. Hlaupið kemur líklegast úr Vestari-Skaftárkatli, sem síðast hljóp úr í júní 2015. Vegna hins stutta tíma sem liðið hefur milli hlaupa er ekki talið að hætta sé á ferðum. Upptök hlaupsins fást ekki staðfest nema með athugunum úr flugi yfir katlana. Hlaupið getur staðið yfir næstu daga, en hámarksrennsli við Sveinstind verður líklegast náð í dag eða á morgun. Sérfræðingar Veðurstofunnar ítreka að um minni háttar jökulhlaup sé að ræða og mjög ólíklegt er að það valdi tjóni í Skaftárdal.

Möguleg vá:

  • Brennisteinsvetni berst með hlaupvatninu þegar það kemur undan jökli. Styrkur þess er þá svo mikill að það getur skaðað slímhúð í augum og öndunarvegi. Ferðafólki er því eindregið ráðlagt að halda sig fjarri jöðrum Skaftárjökuls, Tungnárjökuls og Síðujökuls á meðan hlaupið stendur yfir.
  • Sprungur munu myndast mjög hratt í kringum ketilinn, því ætti ferðafólk á Vatnajökli að halda sig fjarri kötlunum.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert