Allt að 24 stiga hiti á Austurlandi

mbl.is/ Sigurður Bogi Sævarsson

Sunnan- og suðvestanátt verður á landinu í dag, 5–13 metrar á sekúndu í dag. Búist er við að það verði yfirleitt léttskýjað á Norður- og Austurlandi og að hiti verði 16 til 24 stig. Vestan- og sunnanlands má hins vegar búast við súld eða dálítilli rigningu og er gert ráð fyrir að hiti verði 8 til 13 stig.

Á morgun er búist við hægari sunnanátt á og að það dragi úr vætu. Víða verði þó skýjað og hiti 10 til 20 stig, þar sem hlýjast verði á Austurlandi.

Veðurvefur mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert