Forsetahjónin verða á leiknum

Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff verða í Nice á …
Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff verða í Nice á mánudagskvöld. mbl.is/Friðrik Tryggvason

Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, og Dorrit Moussaieff forsetafrú verða á meðal áhorfenda á leik Íslands og Englands í Nice á mánudagskvöld, samkvæmt upplýsingum frá skrifstofu forseta Íslands.

Ólafur var einnig viðstaddur jafnteflisleik Íslands og Portúgals í Saint-Étienne í síðustu viku. Að þeim leik loknum heilsaði hann upp á leikmenn íslenska liðsins og óskaði þeim og þjálfurum til hamingju með úrslitin.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert