Slasaðist í vélarrúmi skipsins

mbl.is/Þórður

Vélstjóri slasaðist við vinnu í vélarúmi skips við Ægisgarð í gærkvöldi. Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst um níuleytið í gærkvöldi tilkynning um vinnuslys, en maðurinn var við vinnu í vélarrúmi skipsins. Hann slasast þegar hann datt aftur fyrir sig niður lítinn stiga eftir að þenslumúffa á röri hafði brotnað með þeim afleiðingum að um 80°C heitt vatn sprautast á manninn. 

Hann kvartaði um eymsli í bringu og öxli, auk þess sem hann var með kúlu á höfði og var hann því  fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild til aðhlynningar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert